13/02/2026 | Ritstjórn
Verðlaunaðir nýsveinar

Verðlaunahafar ásamt Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og Ingu Sæland, barna og menntamálaráðherra
Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík var haldin þann 7. febrúar á Natura hótelinu. Hátíðin var sú fjölmennasta frá upphafi og glæsileg í alla staði. Forseti Íslands er verndari hátíðarinnar og heiðraði hún 33 nýsveina í 21 löggiltri iðngrein fyrir framúrskarandi árangur á sveinprófi. Á meðal verðlaunahafa voru fjórir nemendur Borgarholtsskóla, þeir Bjarki Snær Ásgeirsson í bifvélavirkjun, Atli Aron Davíðsson í blikksmíði, Baldur Freyr Gíslason í blikksmíði og Maxime Liotta í rennismíði. Þeim er óskað hjartanlega til hamingju með frábæran árangur og heiður.

