Líf í borgarholtsskóla

06/11/2026 | Ritstjórn

Ungir umhverfissinnar

Laura Sólveig lýsir hvernig hægt er að hafa áhrif í umhverfismálum

Laura Sólveig lýsir hvernig hægt er að hafa áhrif í umhverfismálum

Laura Sólveig Lefort Scheefer, forseti Ungra umhverfissinna og ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði loftslagsmála, heimsótti skólann í dag og ræddi við nemendur í lífsleikni hjá Hreiðari Haraldssyni og Sigurði Þóri Þorsteinssyni. Umhverfisnefnd skólans stóð fyrir fyrirlestrinum en hann fólst í að fræða nemendur í lífsleikni um áhrif loftslagsbreytinga og hvernig við getum minnkað neyslu hjá okkur hverju og einu. 

Aðspurðir lýstu nemendur áhyggjum sínum af loftslagsbreytingum og þá sérstaklega afleiðingum þeirra á afkomu ísbjarna og pandabjarna. Einnig var notkun gervigreindar þeim hugleikin en hún krefst gríðarlegrar orku sem ekki er alltaf fengin með vistvænum aðferðum.

Laura Sólveig lýsti þeirri loftslagskrísu sem við stöndum frammi fyrir í dag og hvernig neysluhyggja okkar gengur stöðugt á náttúruna. Þannig sé líffræðilegur fjölbreytileiki og sjálfbærni náttúrunnar í hættu ef ekki verður brugðist við. Nemendum bent á leiðir til að minnka neysluna og minnka sóun. Til dæmis að það sé í lagi að sleppa símanum og hafa okkur sjálf í fyrsta sæti með aðferðum eins og að fara út í náttúruna, fræðast um sjálfbærni, íhuga og skrifa niður það sem við erum að hugsa. Mikilvægt er að hugsa í lausnum eins og að hugsa um hvað við borðum og minnka kjötneyslu og hvernig við komumst á milli staða.

Fyrirlesturinn tókst vel í alla staði enda var þetta þörf áminning og góðar umræður spunnust í lokin.