Líf í borgarholtsskóla

25/09/2026 | Ritstjórn

Skoðunarferð í Brúarfoss

Glæsilegur hópur vélvirkjanema ásamt Sigurði yfirvélstjóra á Brúarfossi

Glæsilegur hópur vélvirkjanema ásamt Sigurði yfirvélstjóra á Brúarfossi

Mánudaginn 21. september fóru nemendur í lokaáföngum í aflvélavirkjun í vettvangsferð um borð í Brúarfoss, sem er eitt þriggja systurskipa í eigu Eimskipa. Þetta eru stærstu skip Íslendinga og óhætt að segja að allt um borð sé í stórum stíl. Aðalvélin er 24.000 hestöfl og rafaflsþörfin mælist í megavöttum.

Heimsóknin var afar áhugaverð og móttökurnar frábærar. Sigurður Rafnson yfirvélstjóri leiddi hópinn um vélarrúmið og kynnti þann fjölbreytta búnað sem þarf til að svo stórt skip geti sinnt hlutverki sínu.

Sigurði yfirvélstjóra og Eimskipum er þakkað kærlega fyrir góðar móttökur og fróðlega leiðsögn.