Líf í borgarholtsskóla

25/09/2026 | Ritstjórn

Kíkt á Klett

Páll og Karl sýna vélina góðu

Páll og Karl sýna vélina góðu

Á miðvikudaginn heimsóttu nemendur í vélvirkjun, ásamt kennara sínum, Jóhanni Pálsyni, fyrirtækið Klett hf. sem er umboðsaðili fyrir Caterpillar-vinnuvélar og Scania vörubíla og rútur. Heimsóknin er árlegur viðburður og móttökur eru ávallt afskaplega höfðinglegar.

Páll Theódórsson verkstjóri og Karl Geirsson sölumaður tóku á móti hópnum og leiddu um fyrirtækið sem er staðsett í stóru og vel búnu húsnæði við Sundahöfn. Þar biðu frábærar fréttir.

Hópurinn fékk að skoða glænýja dísilvél með öllum helsta búnaði sem fylgir nútímavélum, þar á meðal mengunarvarnabúnaði. Þessa vél ætlar fyrirtækið að færa skólanum að gjöf til kennslu á vélvirkjabrautinni. Þessi rausnarlega gjöf er frábær viðbót við þann búnað sem fyrir er og er eins og gengur kominn til ára sinna. Mun nýja vélin nýtast vel við kennslu í framtíðinni.

Eftir gönguferð um húsakynnin hélt Kristján Már Atlason, forstjóri Kletts, kynningu á fyrirtækinu og áherslum þess til framtíðar.

Þetta var afar vel heppnuð vettvangsferð og fær Klettur hf. kærar þakkir fyrir góðar móttökur og þessa rausnarlegu gjöf.