20/10/2026 | Ritstjórn
Grúskað í gömlum beinum

Skemmtilegt að skoða gömul bein
Nemendur í SAG3A05 fóru í afar lærdómsríka heimsókn á Rannsóknarmiðstöð Þjóðminjasafnsins á þriðjudaginn. Þar tók á móti þeim mannabeinafræðingurinn Joe W. Walser sem fræddi þau um mannabein sem fundist hafa á Íslandi og sagði ýmsar sögur tengdar þeim. Að því loknu fengu nemendur að setja á sig hanska og handleika beinin.
Örfáir sérstaklega áhugasamir nemendur fengur tækifæri til að kíkja upp á þriðju hæð safnsins eftir að hefðbundinni dagskrá var lokið. Þar skoðuðu þau minjar tengdar berklum, holdsveiki og sullaveiki.
Heimsóknin var skipulögð af Þórdísi Önnu Hermannsdóttur, sögukennara, og veitti hún nemendum kærkomið tækifæri til að kynnast rannsóknum í návígi. Nemendur voru áhugasöm og fagleg og skólanum til mikils sóma.

Hauskúpa handleikin

Áhuginn leynir sér ekki

