Líf í borgarholtsskóla

Náms- og starfsráðgjöf

Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er að standa vörð um velferð nemenda á sem breiðustum vettvangi. Náms- og starfsráðgjöfum er ætlað að starfa í þágu nemenda, leita lausna í málum þeirra og gæta þess að nemendur búi við jafnrétti og að réttlætis sé gætt gagnvart þeim innan skólans.
Náms- og starfsráðgjafar eru með skrifstofu í stofu 309 á 3. hæð.

Bóka tíma hjá náms- og starfsráðgjafa

 

Skilar þetta sér í framenda

 

 

Sandra Hlín Guðmundsdóttir
Viðtalstímar: Mánudagar – fimmtudagar klukkan 09:00-15:30
Föstudagar klukkan 09:00-14:00

 

 

 

Kristín Birna Jónasdóttir 

Viðtalstímar: Mánudagar – fimmtudagar klukkan 08:30-15:30
Föstudagar klukkan 08:30-14:00

 

 

Stuðningur náms- og starfsráðgjafa Borgarholtsskóla er m.a. eftirfarandi:

  • Ráðgjöf um vinnubrögð í námi og námsaðferðir.
  • Persónuleg ráðgjöf og stuðningur í vanda eins og:
    • Lesörðugleika (Dyslexíu), námsleiða, slaka mætingu, kvíða, þunglyndi, vímuefnavanda, langtímaveikindum og fötlun.
  • Námskeið: Námstækninámskeið og hópráðgjöf.
  • Ráðgjöf við náms- og starfsval:
    • Áhugasviðspróf (Bendill og STRONG).
    • Miðlun upplýsinga um möguleika og framboð á námi og störfum.
    • Tengsl við önnur skólastig og atvinnulíf.

 

Uppfært:10/02/2023