Innritun fyrir vorönn 2026
Byrjar: 01/11/2025
Endar: 01/12/2025
Innritun nemenda á vorönn 2026 fer fram dagana 1. nóvember – 1. desember 2025.
Borgarholtsskóli býður upp á fjölbreytt nám, bóknám, iðn- og starfsnám og listnám.
Spurningar og svör um Borgó og námið þar.
Innritun á allar brautir fer fram á Ísland.is.
Dagskóli – nám í boði
- Íþróttaakademía *
- Bíltæknibrautir – bifreiðasmíði, bifvélavirkjun, bílamálun
- Bóknám – félags- og hugvísindabraut, heilsu- og lífsstílsbraut, náttúrufræðibraut, viðskipta- og frumkvöðlabraut
- Framhaldsskólabraut
- Listnám – grafísk hönnun, kvikmyndagerð, leiklist
- Málm- og véltæknibrautir – blikksmíði, rennismíði, stálsmíði, vélvirkjun, pípulagnir
*Nemendur, sem óska eftir að stunda nám í íþróttaakademíu, sækja um skólavist rafrænt eins og aðrir. Því til viðbótar þurfa þeir að sækja um í íþróttaakademíu á sérstöku eyðublaði sem þarf að berast í síðasta lagi 30. nóvember 2025.
Inntökuskilyrði
Innritunargjöld
Nám með vinnu (dreifnám og kvöldskóli)
Boðið er upp á dreifnám á félagsvirkni- og uppeldissviði og kvöldskóla á málm- og véltæknibrautum. Það nám er hugsað fyrir þá sem eiga þess ekki kost að stunda hefðbundið nám í dagskóla og er því hægt samhliða námi í dreifnámi/kvöldskóla að stunda vinnu.
Dreifnám
Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Guðmundsdóttir, sviðsstjóri, ingibjorg.gudmundsdottir@borgo.is
Kvöldskóli
Nánari upplýsingar veitir Ellert Danelíusson deildarstjóri,
ellert.daneliusson@borgo.is

