
Vélvirkjun
Markmið náms í vélvirkjun er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem vélvirkjar inna af hendi, þ.e. uppsetningu, viðhaldi, viðgerðum og þjónustu véla og tæknibúnaðar skipa, vinnslustöðva, vinnuvéla, verksmiðja, orkuvera og orkuveitna.
Til að geta hafið nám í sérgreinum á málm- og véltæknibrautum (rennismíði, stálsmíði eða vélvirkjun) þurfa nemendur að ljúka grunnnámi. Gert er ráð fyrir að grunnnáminu megi ljúka á tveimur önnum.
Nemendur geta lokið þeim hluta námsins sem kenndur er í skóla (160 einingum) á þremur námsárum. Að þeim tíma loknum tekur við starfþjálfun á vinnumarkaði sem metin er til 80 eininga.
Að þessu námi loknu geta nemendur sótt um og þreytt sveinspróf í vélvirkjun sem veitir starfsréttindi í faginu. Sveinsprófið veitir rétt til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Nemendur geta útskrifast
- að loknu starfsnámi,
- að loknu starfsnámi og stúdentsprófi,
- að loknum öllum fagáföngum (grunnnámi, kjarna og sérgreinum) í skóla og viðbótaráföngum til stúdentsprófs.
Þær kröfur sem gerðar eru vegna stúdentsprófs eru neðst á síðunni undir fyrirsögninni Viðbótarnám til stúdentsprófs.
Grunnnám
Nemendur sem ekki ná A, B eða hærra en 7,0 í grunnskólaeinkunn í íslensku og ensku þurfa að taka undirbúningsáfanga í þeim fögum, ÍSL1A05 og ENS1A05.
Nemendur sem ekki ná A, B eða hærra en 7,0 í grunnskólaeinkunn í stærðfræði þurfa að taka undirbúningsáfanga, STÆ1A05.
Kjarni
Nemendur taka tvær einingar í íþróttum til viðbótar við þær sem eru í grunnnámi. Hægt er að velja eftirfarandi áfanga: RÆK1A01 – ræktin, JÓG1A01 – jóga, KÖR1A01 – körfubolti, FÓT1A01 – fótbolti og ÚTI1A01 – útivist. Velja má hvern þessara áfanga oftar en einu sinni og velja má fleiri en einn áfanga á önn.
Sérgreinar
Bundið áfangaval
5 einingar af 15
Uppfært: 01/10/2026
