
Málm og véltæknigreinar í kvöldskóla
Málm- og véltæknibrautir – kvöldskóli
Kvöldskóli á málm- og véltæknibrautum er hugsað fyrir þá sem eiga þess ekki kost að stunda hefðbundið nám í dagskóla og er því hægt samhliða námi í kvöldskóla að stunda vinnu. Kennsla fer fram á kvöldin í Borgarholtsskóla. Sömu kröfur eru gerðar til nemanda í kvöldskóla og í dagskóla þó að í kvöldskóla séu kennslustundir helmingi færri. Hver áfangi er kenndur einu sinni í viku.
Stundatafla í kvöldskóla á málm- og véltæknibrautum vorönn 2026
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um kvöldskóla í Borgarholtsskóla veitir Ingibjörg Guðmundsdóttir, sviðsstjóri iðn- og starfsnáms.
Uppfært: 12/02/2026
