
Framhaldsskólabraut
Námi á framhaldsskólabraut er ætlað að undirbúa nemandann undir nám á starfs-, verk- eða bóknám á framhaldsskólastigi og efla hæfni hans sem þátttakanda í nútíma lýðræðissamfélagi. Námið er ætlað þeim nemendum sem ekki hafa lokið grunnskóla með þeim árangri sem krafist er við inntöku á aðrar brautir framhaldsskólans. Námið er allt að 90 einingar og eru námslok á 1. hæfniþrepi.
Gert er ráð fyrir að stór hluti nemenda færist yfir á aðrar námsbrautir eftir um tveggja anna nám. Því er lögð áhersla á að undirbúa hvern og einn undir það nám sem viðkomandi hyggst stunda. Fyrir þá sem eru óákveðnir um náms- og starfsval er lögð áhersla á markvissa náms- og starfsráðgjöf. Nemendum sem ekki hafa uppfyllt inntökuskilyrði á aðrar námsbrautir framhaldskólans við lok fyrsta námsárs gefst kostur á að velja áfanga af öðrum námsbrautum (frjálst val) að því gefnu að skilyrði um undanfara séu uppfyllt.
Á brautinni er öflugt umsjónarkerfi þar sem nemendur fá aðhald og stuðning og áhersla er á samráð og samskipti við foreldra og forráðamenn nemenda. Til þess að auðvelda yfirfærslu nemandans frá grunnskóla í framhaldsskóla og skapa ákjósanlegt námsumhverfi er nemendum skipt í bekki á fyrsta námsári.
Nánari upplýsingar um framhaldsskólabraut í Borgarholtsskóla veitir Hrönn Harðardóttir, sviðsstjóri.
Kjarni
*Eftirfarandi áfangar teljast ekki til eininga inn á aðrar brautir skólans.
Bundið pakkaval
Nemendur velja sér eina af eftirfarandi línum:
Undirbúningsnám FSB – bóknámslína
Undirbúningsnám FSB – listnámslína
Undirbúningsnám FSB – verknámslína
Nemendur taka tvo af fjórum áföngum.
Uppfært: 05/10/2026
