Viðskipta- og hagfræðibraut
Á viðskipta- og hagfræðibraut fara saman haldgóð almenn menntun og áhersla á færni nemenda til að takast á við krefjandi háskólanám. Námið er skilgreint á þriðja hæfniþrepi og lýkur með stúdentsprófi. Á brautinni öðlast nemendur innsýn í heim verslunar og viðskipta og hentar námið því vel þeim sem hyggjast leggja stund á háskólanám á þeim sviðum. Áhersla er lögð á færni í stærðfræði og hagnýtingu hennar auk þess sem nemendur kynnast grunnþáttum í þjóð- og rekstrarhagfræði.
Nýsköpunar- og frumkvöðlafræði eru rauður þráður í náminu á brautinni. Í lokaverkefni nemenda hljóta þeir þjálfun í öllum þáttum nýsköpunar frá hugmyndavinnu og gerð viðskiptaáætlana til markaðssetningar og eftirfylgni.
Grunnur (105 einingar)
*Frjálst val milli kjörsviðsáfanga í ensku (ENS3A05, ENS3B05 , ENS3C05 , ENS3D05 eða ENS3E05 ).
Kjarni viðskipta- og hagfræðibrautar (35 einingar)
Bundið pakkaval (20 einingar)
Nemendur geta valið hvenær áfangar af kjörsviðum eru teknir.
Kjörsvið allra brauta (5 einingar)
Kjörsvið viðskipta- og hagfræðibrautar (25 einingar)
Frjálst val 10 einingar
Uppfært: 26/04/2023