Líf í borgarholtsskóla

Viðbótarnám til stúdentsprófs - starfsnám

Nemendum er bent á að kynna sér vel þær kröfur sem gerðar eru til undirbúnings í því námi sem stefnt er á í framhaldinu og haga vali á áföngum í samræmi við þær.

Umsóknartímabilin vegna viðbótarnáms til stúdentsprófs eru 1.-15. nóvember og 1.-15.  apríl.
Náms- og starfsráðgjafar veita nánari upplýsingar um viðbótarnám til stúdentsprófs. 

Nemendur sem ætla að útskrifast með viðbótarnám til stúdentsprófs þurfa að taka áfanga til viðbótar við þá áfanga sem tilheyra fyrra námi: 

Leikskólaliðar og stuðningsfulltrúar

Kjarni (35 einingar)

*Nemendur velja einn af tveimur áföngum
** Nemendur velja tvo af fjórum áföngum
***Nemendur eiga að velja einn af tveimur áföngum. Þeir sem ætla að taka STÆ3A05 þurfa að velja STÆ2B05.

Bundið val (10 einingar)

Nemendur velja einn áfanga í ensku eða stærðfræði ásamt einum áfanga í raun- eða félagsgreinum. 

Frjálst val

Nemendur nýta frjálst val til þess að fylla upp í þær 200 einingar sem þarf til stúdentsprófs ef einingar úr fyrra námi duga ekki til. 

Athugið að einingar á 1. þrepi mega að hámarki vera 66, einingar á 2. þrepi þurfa að lágmarki að vera 66 og einingar á 3. þrepi þurfa að lágmarki að vera að 34. 

Félagsliðar

Kjarni (25 einingar)

*Nemendur velja einn af tveimur áföngum
**Nemendur velja einn af þremur áföngum

Bundið val (10 einingar)

Nemendur velja einn áfanga í ensku eða stærðfræði ásamt einum áfanga í raun- og félagsgreinum.

Uppfært: 21/10/2026