08/05/2023 | Ritstjórn
Sýning lokaverkefna í kvikmyndagerð

Kátir nemendur fyrir utan Bíó Paradís
Laugardaginn 6. maí fór fram sýning á lokaverkefnum nemenda í kvikmyndagerð í Bíó Paradís. Þar sýndu nemendur á kvikmyndakjörsviði stuttmyndir sem þau hafa unnið að á önninni undir stjórn Þiðriks Christians Emilssonar, Þorgeirs Guðmundssonar, Hákons Más Oddsonar og Curvers Thoroddsen, kennara í kvikmyndagerð.
Eftirfarandi myndir voru sýndar:
Afi eftir Ignacio Gabriel G. Guðjónsson
Að mála fyrir mann eftir Óskar Nikulás Sveinbjarnarson
Hún eftir Andra Jón Egilsson
The Activist eftir Sayed Wahab Hashimi
Blóðug örlög eftir Gunnar Má Björgvinsson
Hinn smurði eftir Gabríel Má Geirsson
Hel eftir Odd Auðunsson
Óminni eftir Aron Daða Arnkelsson
Kertaljós eftir Adriönnu Musial
Móðir móðir eftir Jun Gunnar Lee Egilsson
Breiðholtið eftir Magnús Sigurð Jónsson
Íbúð 302 eftir Adam Emil Ríkarðsson
Mikil ánægja var með sýninguna og nemendum er óskað til hamingju með frábær lokaverkefni.
Myndagallerí

Veggspjald fyrir sýninguna

Spjallað saman fyrir sýningu

Vel var mætt á sýninguna

Nemendur að loknum sýningum

Nemendur ásamt kennurum