22/05/2025 | Ritstjórn
Styrkur frá Ásusjóði til sérnámsbrautar

Tekið á móti styrknum. F.v. Magnea, Sigrún, Guðrún, Ársæll, Hrönn og Halldóra.
Á 10 ára afmæli Borgarholtsskóla, árið 2006, stofnaði Ása Björk Gísladóttir, fyrrum nemandi á sérnámsbraut skólans, menningarsjóð brautarinnar sem fékk nafnið Ásusjóður. Sjóðurinn hefur verið starfandi síðan þá og styrkt ýmsa menningarviðburði fyrir nemendur brautarinnar.
Þriðjudaginn 13.maí kom Sigrún Benediktsdóttir móðir Ásu Bjarkar og veitti sjóðnum veglega gjöf, 500.000.- kr.
Fyrir áhugasama þá er hægt að gefa í sjóðinn, t.d. í tilefni afmæla, ferminga, giftinga eða til minningar, og styðja þannig við viðburði fyrir sérnámsbraut. Kennitala sjóðsins er 040249-4279 og reikningsnúmer 0130-26-101849.