Líf í borgarholtsskóla

14/04/2026 | Ritstjórn

Skapandi samstarf við MÍT

Nemendur hengdu upp kynningarefni sitt í skólanum

Nemendur hengdu upp kynningarefni sitt í skólanum

Undanfarin ár hefur Borgarholtsskóli verið í góðu samstarfi við Menntaskólann í tónlist (MÍT) sem felst í því að nemendur okkar í grafískri hönnun hafa keppt í gerð plakata fyrir stórtónleika MÍT.

Verðlaunaplakatið er síðan notað í auglýsingum fyrir tónleikana. Þetta árið voru tónleikarnir tileinkaðir tónlistarsystkinunum Ellý Vilhjálms og Vilhjálmi Vilhjálmssyni. Hönnun Söru Óskar Benedikstdóttur þótti henta tilefninu best og varð veggspjald hennar því fyrir valinu. Fulltrúar frá nemendafélagi MÍT tilkynntu niðurstöðurnar og veittu verðlaun.

Auk þess sáu nemendur á kvikmyndabraut skólans um að taka tónleikana upp.

Kennarar á listnámsbraut fá mikið hrós fyrir framtakið en þetta verkefni er mikil hvatning til skapandi starfa nemenda.