Líf í borgarholtsskóla

06/11/2026 | Ritstjórn

Pælt í peningum

Hluti þeirra nemenda sem heimsóttu Seðlabankann

Hluti þeirra nemenda sem heimsóttu Seðlabankann

Í dag fóru lífsleikninemendur í heimsókn í Seðlabankann í tveimur hollum. Á móti þeim tók Stefán Jóhann Stefánsson og fræddi þau um starfsemi, hlutverk og markmið Seðlabankans. Nemendur fengu svör við áleitnum spurningum eins og hvernig peningar verða til, hvað veldur verðbólgunni og hvernig blessaðir stýrivextirnir eru reiknaðir út.

Auk þess fengu nemendur góð ráð um fjármál og fjárfestingar eins og hvað ber að hafa í huga þegar lán eru tekin. Allt fór þetta vel í unga fólkið en sum voru þó ekki ánægð að heyra hvað bílar væru léleg fjárfesting. Þeir gera nefnilega ekkert annað en að lækka í verði.

Þessi heimsókn er gott dæmi um praktísk viðfangsefni sem gera nemendum kleift að mæta áskorunum sem bíða þeirra úti í fullorðinslífinu.