Líf í borgarholtsskóla

21/05/2026 | Ritstjórn

Nýr skólameistari

Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir, nýr skólameistari Borgarholtsskóla

Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir, nýr skólameistari Borgarholtsskóla

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, skipaði í dag Ástu Laufeyju Aðalsteinsdóttur skólameistara Borgarholtsskóla. Ásta Laufey hóf störf við skólann sem enskukennari árið 2000 og hefur sinnt ótal öðrum störfum innan hans síðan. Hún hefur starfað sem verkefnastjóri mannauðsmála, fulltrúi í félags- og forvarnarteymi og kynningarstjóri. Hún var ráðin aðstoðarskólameistari árið 2017 og hefur tvívegis verið sett skólameistari í afleysingum.

Það er gríðarlegur fengur fyrir skólann að fá Ástu Laufeyju sem skólameistara en hún er afkastamikill orkubolti sem lætur málefni skólans sig miklu varða.