09/09/2026 | Ritstjórn
Nýnemaferð íþróttaakademíu

Ánægðir nýnemar í haustsólinni í Hveragerði
Í dag, þriðjudag, skelltu nýnemar í íþróttaakademíunni sér í hópeflisferð útfyrir bæjarmörkin. Ferðin hófst með því að hópurinn fékk leiðsögn um hella í námunda við Þorlákshöfn og gæddu þau sér á kakó og kleinum. Síðan lá leiðin í Hveragerði þar sem hópurinn hristi sig saman í leikjum og baðaði sig í sólinni.
Dagurinn var frábær og skemmtu nemendur ÍAK sér konunglega og voru sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.

Það er vissara að vera með hjálma og höfuðljós í hellaferðum

Nestisstopp neðanjarðar

Leikgleðin við völd í nýnemaferð ÍAK

