Líf í borgarholtsskóla

09/05/2025 | Ritstjórn

Lokasýning í grafískri hönnun

Nemendur ásamt kennurum í grafískri hönnun

Nemendur ásamt kennurum í grafískri hönnun

Fimmtudaginn 8. maí var opnun sýningar á lokaverkefnum útskriftarnema í grafískri hönnun á Borgarbókasafni menningarhúsi í Spönginni. Þar eru sýnd fjölbreytt og glæsileg verkefni nemenda sem þau hafa unnið í námi sínu í Borgarholtsskóla. Einnig eru til sýnis portfolio möppur nemenda þar sem getur að líta sýnishorn af verkum þeirra.

Verkefnin hafa nemendur unnið undir styrkri stjórn kennara í grafískri hönnun, Kristínar Maríu Ingimarsdóttur, Kristínar Þóru Guðbjartsdóttur og Ragnhildar Ragnarsdóttur. Þær eiga mikið lof skilið fyrir vinnu sína með nemendum.

Ársæll Guðmundsson skólameistari hélt stutta tölu ásamt Guðnýju Maríu Jónsdóttur sviðsstjóra og Kristínu Maríu Ingimarsdóttur fagstjóra. Guðný María færði svo nemendum rósir og kennurum þeirra blómvönd með hamingjuóskum.

Nemendum og kennurum er óskað innilega til hamingju með glæsilega sýningu. Sýningin stendur til 20. maí og eru öll hvött til þess að leggja leið sína á bókasafnið í Spönginni og virða fyrir sér afraksturinn af vinnu vetrarins.