20/06/2025 | Ritstjórn
Laxness-bíllinn kominn heim

Jagúarinn kominn á sinn stað í hlaðinu á Gljúfrasteini
Laugardaginn 14. júní síðastliðinn var haldin hátíð á Gljúfrasteini, húsi skáldsins. Tilefnið var ærið því eftir um fjögurra ára fjarveru var Jagúarbifreið Halldórs Laxness komin aftur á sinn stað í hlaðinu.
Forsaga málsins er sú að fyrir rúmum fjórum árum hafði forsvarsfólk safnsins samband við skólann og óskaði eftir því að bíllinn, sem var orðinn töluvert illa leikinn eftir að hafa staðið úti í alls kyns veðrum, yrði tekinn til kostanna af nemendum skólans í bifreiðasmíði og bílamálun. Eftir töluverða umhugsun ákváðu kennarar skólans í greinunum að taka verkefnið að sér ásamt nemendum sínum.
Bíllinn kom í hús og var pússaður niður í stál, ryðbættur og réttur og loks málaður í sínum fallega hvíta lit. Alls komu um 60 nemendur að vinnu við bílinn og er óhætt að segja að vel hafi til tekist.
Þau sem leggja leið sína að safninu á Gljúfrasteini í sumar geta barið dýrðina augum.
Þökkum við hinu frábæra starfsfólki safnsins og velunnurum bílsins kærlega fyrir gott og gefandi samstarf. Það er verðmætt fyrir nemendur okkar að fá tækifæri til að takast á við verkefni þar sem sameinast menning, saga, handverk og útsjónarsemi.
Myndagallerí

Ársæll skólameistari brautskráir Jagúarinn

Ólafur Gunnar, kennari í bílamálun og bifreiðasmíði, segir frá viðgerðarferlinu

Starfsfólk Borgarholtsskóla stillir sér upp við spegilgljáandi Jagúarinn