Líf í borgarholtsskóla

18/09/2026 | Ritstjórn

Landvinningar í Svíþjóð

Ætli allt sé í skralli hér?

Ætli allt sé í skralli hér?

Fjórir nemendur í bifvélavirkjun eru nú við nám í Ystad Gymnasium framhaldsskólanum í Svíþjóð. Þetta eru þau Reynir Þór Egilsson, Viktor Ágúst Kristinsson, Bjarni Fannar Eiðsson og Júlía Freydís Egilsdóttir. Þau hafa verið í starfsnámi á verkstæðum í borginni í tvær vikur og fengum við þær fréttir að þau hafi verið til mikillar fyrirmyndar og var verkum þeirra hrósað í bak og fyrir.

Það er ánægjulegt að heyra af góðu gengi nemenda okkar á erlendri grund. Krakkarnir hafa unað sér vel í Svíþjóð og nota að sjálfsögðu tækifærið til að skreppa til Kaupmannahafnar og heimsækja Tívolíið og Strikið.