Líf í borgarholtsskóla

18/09/2026 | Ritstjórn

Gestir frá framandi slóðum

Gestir frá Japan og gestgjafar þeirra

Gestir frá Japan og gestgjafar þeirra

Reglulega fáum við í Borgarholtsskóla gesti frá útlöndum. Starfsfólk tekur virkan þátt í erlendu samstarfi enda er mikill áhugi á skólanum ytra. Oftast koma gestirnir frá Evrópulöndum en í vikunni var hér hópur á ferð sem var lengra að kominn.

Um var að ræða nemendur og kennara frá Otemon framhaldsskólanum í Japan. Forsaga heimsóknarinnar er sú að í vor fór starfsfólk Borgarholtsskóla í heimsókn í tvo skóla í Osaka. Otemon framhaldsskólinn kom til greina sem annar þeirra en þrátt fyrir að aðrir skólar hafi á endanum orðið fyrir valinu leist forsvarsfólki hans svo vel á Borgó að þau ákváðu að heimsækja okkur í Íslandsferð sinni. Í hópnum voru 19 nemendur og þrír kennarar ásamt leiðsögukonu.

Það var Nökkvi Jarl Bjarnason sem tók hlýlega á móti hópnum og leiddi þau um skólann ásamt nemendum sínum í íslensku 2A05. Nökkvi kennir japönsku við Háskóla Íslands og tók einnig á móti hópnum þar.

Það er gaman þegar tveir nemendahópar hvor úr sínum heimshluta hittast og kynnast. Nemendur okkar skemmtu sér konunglega og voru mjög spenntir fyrir heimsókninni. Þau stóðu sig  öll stórvel við að kynna skólann og þekking þeirra, framkoma og áhugasemi var til fyrirmyndar.