23/02/2024 | Ritstjórn
Fyrirlestur frá Pálmari Ragnarssyni
![Pálmar Ragnarsson](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/fde9c03a-7978-4d06-8f02-6fa3bdccf36d.jpg)
Pálmar Ragnarsson
Fimmtudaginn 22. febrúar hélt Pálmar Ragnarsson fyrirlestur fyrir nemendur. Fyrirlesturinn var í boði foreldarfélags skólans.
Pálmar Ragnarsson er reyndur fyrirlestari en áherslur hans snúa að því að auka jákvæðni í samskiptum og mikilvægi hvatningar og hróss. Vel var mætt á fyrirlesturinn og mikil ánægja með hann.
Pálmari er þakkað kærlega fyrir komuna og ánægjulegan og skemmtilegan fyrirlestur.
Myndagallerí
![Vel var mætt á fyrirlesturinn](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/e1c70c00-adc0-4df6-a9b9-27a0da1f9850.jpg)
Vel var mætt á fyrirlesturinn
![Pálmar með fyrirlestur um jákvæð samskipti](https://wp.borgo.is/wp-content/uploads/6d1df1b3-9c1a-467d-9796-9a9557b8cc4f.jpg)
Pálmar með fyrirlestur um jákvæð samskipti