28/05/2025 | Ritstjórn
Brautskráning vor 2025

Útskriftarhópur vor 2025 ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara
Brautskráning Borgarholtsskóla fór fram í Háskólabíói miðvikudaginn 28. maí 2024. Athöfninni var auk þess streymt á facebook síðu skólans af nemendum í kvikmyndagerð undir stjórn Þorgeirs Guðmundssonar kennara.
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar spilaði undir stjórn Daníels Friðjónssonar í salnum á meðan gestir voru að koma sér fyrir í sætum.
Ársæll Guðmundsson skólameistari setti athöfnina en gaf svo orðið til Flosa Jóns Ófeigssonar sem var kynnir og stýrði athöfninni.
Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir aðstoðarskólameistari flutti annál annarinnar. 1324 nemendur stunduðu nám við skólann, 1038 í dagskóla og 286 í dreifnámi. Í bóknámi voru 332 nemendur, í iðn- og starfsnámssviði voru 606 nemendur, í listnámi voru 134 nemendur og á undirbúnings- og sérnámssviði voru 130 nemendur, auk þess voru 22 grunnskólanemendur í lisnámsvali. Ásta Laufey fór yfir það helsta sem gerst hefur á önninni, bæði í hinu formlega skólastarfi og hjá Nemendafélagi skólans sem staðið hefur sig mjög vel.
Kór Borgarholtsskóla flutti tvö tónlistaratriði undir stjórn Guðbjargar Hilmarsdóttur kennara. Fyrra lagið sem þau fluttu var Ástarsæla – lag Gunnars Þórðarssonar við ljóð Þorsteins Eggertssonar en Særún Georgsdóttir söng einsöng. Hið síðara var Vikivaki, lag Valgeirs Guðjónssonar við texta Jóhannesar úr Kötlum.
Ársæll og Ásta Laufey sáu um brautskráningu nemenda ásamt sviðsstjórum en 129 nemendur voru brautskráðir af flestum námsbrautum skólans og sumir útskrifuðust af fleiri en einni braut. Öllum útskriftarnemum var afhent birkiplanta til gróðursetningar en það er hefð sem var innleidd á fyrstu árum skólans. Fjölmörg verðlaun og viðurkenningar voru veitt fyrir frábæran námsárangur og skólasókn.
Dagmar Njarðardóttir flutti kveðjuávarp útskriftarnema en hún brautskráðist af listnámsbraut, grafískri hönnun og er hún fráfarandi forseti nemendafélags Borgó. Ávarp 10 ára útskriftarnema flutti Arnór Steinn Ívarsson sem útskrifaðist af félagsfræðabraut árið 2015. Valgeir Örn Ragnarsson flutti ávarp 20 ára útskriftarnema en hann útskrifaðist af félagsfræðabraut árið 2005.
Ársæll Guðmundsson flutti kveðjuorð til brautskráðra nemenda þar sem hann talaði um tileinkunn, grunngildi skólans og einkunnarorð. Hann sagðist vonast til að útskriftarnemar hefðu fengið gott veganesti frá Borgarholtsskóla þannig þeim auðnaðist að fara troðnar sem ótroðnar slóðir og ná árangri og markmiðum sínum. Hann bað útskriftarnema að vera óhrædd við að prófa sig áfram og skapa eitthvað nýtt auk þess að tileinka sér góðmennsku, trú og kærleika.
Þrír kennarar láta af störfum vegna aldurs þetta vorið en það eru þau Ásgeir Þorsteinsson, Eva Leplat Sigurðsson og Óttar Ólafsson. Þau voru sérstaklega heiðruð um leið og þeim var þakkað fyrir óeigingjarnt starf í þágu nemenda og skóla.
Velunnurum skólans var þakkað fyrir þeirra framlag til skólastarfsins. Starfsfólki Borgarholtsskóla var þakkað fyrir samstarfið á skólaárinu. Einnig var öllum þeim, sem með einum eða öðrum hætti, komu að framkvæmd og skipulagningu brautskráningarinnar færðar sérstakar þakkir.
Að lokum var nemendum óskað velfarnaðar og góðs gengis í að ná sínum markmiðum, auk þess sem þeim var þakkað fyrir að lífga upp á skólalífið á námsárum sínum.
Fleiri myndir frá athöfninni eru á facebook síðu skólans.
Myndagallerí

Skólameistari og aðstoðarskólameistara leiða nemendur í salinn

Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leik lög fyrir athöfnina undir stjórn Daníels Friðjónssonar

Flosi Jón Ófeigsson var kynnir á athöfninni

Ársæll Guðmundsson skólameistari setti athöfnina og flutti kveðjuorð til útskriftarnema

Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir aðstoðarskólameistari flutti yfirlit annar

Sönghópur Borgarholtsskóla flutti tvö lög og söng Særún Georgsdóttir einsöng í öðru þeirra

Elmar Sigmarsson fékk fjölmörg verðlaun fyrir góðan námsárangur en hann útskrifaðist af náttúrufræðibraut

Sylvía Þórðardóttir útskriftarnemi af leiklistarkjörsviði listnámsbrautar hlaut hæstu einkunn á stúdentsprófi

Sigríður Dóra Guðmundsdsóttir fékk verðlaun fyrir sérlega góðan árangur í sögu frá Sögufélaginu

Dagmar Njarðardóttir nýstúdent flutti kveðjuorð útskriftarnema

Arnór Steinn Ívarsson flutti ávarp 10 ára útskriftarnema

Valgeir Örn Ragnarsson flutti ávarp 20 ára útskriftarnema

Nemendur sem útskrifuðst úr íþróttakademíu Borgarholtsskóla

Kampakátir með hvítar húfur

Þessi eru af listnámsbraut

Þessir voru líka glaðir

Stúdínur af náttufræðibraut

Útskriftarnemar af félagsvirkni- og uppeldisbrautum

Þessi voru útskrifuð úr iðnnámi

Það voru margir hvítir kollar um ganga Háskólabíós í dag

Sum voru líka með grænar húfur

Það er mikil fjölbreytni í Borgarholtsskóla

Eva Leplat Sigurðsson, Ársæll Guðmundsson, Óttar Ólafsson, Ásgeir Þorsteinsson og Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir