23/11/2026 | Ritstjórn
Bílamálun í góðum málum

Það fer ekki á milli mála hvar stelpurnar í bílamáluninni hafa lært að stilla sér upp
Enn berast skólanum góðar gjafir frá fyrirtækjum í þeim greinum sem tengjast iðnnámsbrautum skólans. Í þetta sinn færði bílaumboðið Askja bíliðngreinunum nokkur bretti til að vinna með. Þessi bretti eru rándýr og þetta er því eins og að fá gull upp í hendurnar. Nemendur geta nú spreytt sig á því að pússa, saga, sjóða og mála alvöru bretti sem er svo miklu skemmtilegra og lærdómsríkara en að notast við eftirlíkingar. Við kunnum Öskju bestu þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf.
Í bílamáluninni ríkir dúndurstemmning. Í gegnum tíðina hafa strákar verið í meirihluta á brautinni en stelpurnar hafa verið að sækja í sig veðrið undanfarin ár. Þær mynda hressan og þéttan hóp sem skoraðist ekki undan þegar þær voru beðnar um að stilla sér upp fyrir ljósmyndara ásamt kennaranum sínum, Birgi Erni, sem er með fyrirsætutaktana upp á tíu eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Það er því hiklaust hægt að mæla með bíliðngreinum í Borgarholtsskóla fyrir öll áhugasöm.

Birgir Örn brettakappi stillir sér upp

Stelpurnar og Birgir setja sig í stellingar

