Náms- og starfsráðgjöf
Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er að standa vörð um velferð nemenda á sem breiðustum vettvangi. Náms- og starfsráðgjöfum er ætlað að starfa í þágu nemenda, leita lausna í málum þeirra og gæta þess að nemendur búi við jafnrétti og að réttlætis sé gætt gagnvart þeim innan skólans.
Náms- og starfsráðgjafar eru Kristín Birna Jónasdóttir og Sandra Hlín Guðmundsdóttir og eru þær með skrifstofu í stofu 309 á 3. hæð.
Bóka tíma hjá náms- og starfsráðgjafa
Viðtalstímar náms- og starfsráðgjafa
Mánudagur |
Þriðjudagur |
Miðvikudagur |
Fimmtudagur
|
Föstudagur |
08:30 - 15:30 KBJ | 08:30 - 15:30 KBJ | 08:30 - 15:30 KBJ | 08:30 - 15:30 KBJ | 08:30 - 14:00 KBJ |
09:00 - 15:30 SHG | 09:00 - 15:30 SHG | 09:00 - 15:30 SHG | 09:00 - 15:30 SHG | 09:00 - 14:00 SHG |
Stuðningur náms- og starfsráðgjafa Borgarholtsskóla er m.a. eftirfarandi:
- Ráðgjöf um vinnubrögð í námi og námsaðferðir.
- Persónuleg ráðgjöf og stuðningur í vanda eins og:
o Lesörðugleika (Dyslexíu), námsleiða, slaka mætingu, kvíða, þunglyndi, vímuefnavanda, langtímaveikindum og fötlun. - Námskeið: Námstækninámskeið og hópráðgjöf.
- Ráðgjöf við náms- og starfsval:
o Áhugasviðspróf (Bendill og STRONG).
o Miðlun upplýsinga um möguleika og framboð á námi og störfum.
o Tengsl við önnur skólastig og atvinnulíf.
11.8.2020