Meðferð vísbendinga um vímuefnaneyslu í Borgarholtsskóla
Vímuefnaneysla samrýmist ekki námi í Borgarholtsskóla |
- Ábendingar um hugsanlega vímuefnaneyslu berast til starfsfólks skólans frá nemendum, foreldrum, kennurum eða öðru starfsfólki.
- Forvarnafulltrúa/náms- og starfsráðgjafa er gerð grein fyrir grunsemdum.
- Forvarnateymi skólans tekur málið til umfjöllunar og kallar eftir upplýsingum frá öðru starfsfólki skólans og foreldrum þar sem það á við. Forvarnateymið ákveður næstu skref í málinu.
- Ef forvarnateymi telur allt benda til að um vímuefnaneyslu sé að ræða lætur það viðkomandi umsjónarkennara vita sem gerir foreldrum grein fyrir stöðunni og beinir þeim til forvarnafulltrúa/náms- og starfsráðgjafa.
- Forvarnafulltrúi/náms- og starfsráðgjafi fer yfir:
- tilboð skólans til að aðstoða nemanda og foreldra
- hvað foreldrar geta gert til aðstoðar barni sínu og skólanum
- hver ábyrgð foreldra er í meðferð vímuefnavanda - Skólameistari kallar á viðkomandi nemanda og gerir honum grein fyrir stöðunni, hvert tilboð skólans er til aðstoðar og þeim viðurlögum sem beita má innan skólans vegna vímuefnaneyslu.
- Forvarnafulltrúi/náms- og starfsráðgjafi ræðir við viðkomandi nemanda.
- Ef ofangreindar aðgerðir bera ekki árangur að mati forvarnateymis verður gripið til eftirfarandi aðgerða:
- viðurlögum beitt
- rætt við foreldra
- tilkynnt um vímuefnaneyslu til lögreglu
Sé nemandi yfir 18 ára aldri er ekki haft samband við foreldra nema með gefnu leyfi nemandans.
- Ef nemandi er í vímuefnavanda er það siðferðisleg skylda samnemenda, starfsfólks, kennara og skólastjórnenda að skerast í leikinn.