Val fyrir haustönn 2018
Skipulag á skráningu áfanga fyrir haustönn verður nú með breyttu sniði. Breytingin er gerð til þess að auka ráðgjöfina því nemendur átta sig ekki alltaf á skipulagi námsins í áfangakerfinu.
Í stað heillar viku áður verður bara einn dagur, föstudagurinn 16. mars, ætlaður til skráningarinnar í Innu. Þá fellur niður kennsla í 2. og 3. tíma og nemendur mæta í einstaklingsráðgjöf milli kl. 9:15 og 11:35. Nemendur sem hafa umsjónarkennara mæta til hans en aðrir mæta til sviðstjóra, deildarstjóra eða námsráðgjafa samkvæmt skipulagi sem nemendur hafa fengið sent og verður sett á tilkynningatöflur á föstudaginn.
Til að minnka biðtímann skiptum við nemendahópnum í tvennt. Þeir sem eru í fyrri hluta stafrófsins, A – H, mæta kl. 9.15 en þeir sem eru í seinni hlutanum, I – Ö, mæta kl. 10.35. Þetta er þó ekki heilög skipting ef hún hentar illa fyrir einhvern.
Nemendur eru hvattir til að skoða framboð kjörsviðs- og valáfanga áður en þeir mæta í ráðgjöfina.