Upphaf haustannar og töflubreytingar
Kennsla á haustönn 2019 hefst þriðjudaginn 20. ágúst samkvæmt stundatöflu.
Stundatöflur nemenda verða birtar fimmtudaginn 15. ágúst kl. 12.00. Föstudaginn 16. og mánudaginn 19. ágúst eftir hádegi hafa þeir sem sjá fram á að brautskrást í desember forgang í töflubreytingar. Mikilvægt er að þeir komi við hjá áfangastjórum eða sviðstjórum viðkomandi brauta til þess að fara yfir feril sinn.
Aðrir nemendur en útskriftarefni senda inn beiðnir um töflubreytingar rafrænt í gegn um www.inna.is.