Upphaf haustannar og töflubreytingar
Kennsla á haustönn 2018 hefst mánudaginn 20. ágúst samkvæmt stundatöflu.
Stundatöflur nemenda verða birtar fimmtudaginn 16. ágúst. Þann dag og til hádegis föstudaginn 17. ágúst hafa þeir sem sjá fram á að brautskrást í desember forgang í töflubreytingar. Mikilvægt er að þeir komi við hjá áfangastjórum eða sviðstjórum viðkomandi brauta til þess að fara yfir feril sinn.
Aðrir nemendur en útskriftarefni senda inn beiðnir um töflubreytingar rafrænt í gegn um www.inna.is.