Opið hús
Fimmtudaginn 2. mars var opið hús í Borgarholtsskóla. Nemendum 10. bekkjar
og foreldrum þeirra var sérstaklega boðið að koma og kynna sér námsframboð,
félagslíf og skólabrag.
Starfsfólk og nemendur
kynntu inntökuskilyrði og hið fjölbreytta nám sem hægt er að stunda í BHS. Gestum bauðst einnig að ganga
um allt skólahúsnæðið og skoða aðstöðuna.
Nemendur í leiklist lífguðu upp á
samkomunna með fjörlegri framkomu og atriðum úr The Rocky Horror Show.
Fjölmargir gestir lögðu leið sína í skólann og var aðsókn framar björtustu vonum.
Fleiri myndir frá opna húsinu má sjá á facebook síðu skólans .