Nýnema- og foreldrakynning
Fimmtudaginn 16. ágúst var nýnemum, sem eru að koma beint úr grunnskóla, og foreldrum og forráðamönnum þeirra boðið að koma í Borgarholtsskóla á kynningu.
Ársæll Guðmundsson skólameistari bauð nýnema velkomna og hvatti þá til góðrar ástundunar.
Námsráðgjafar, bókasafnsstýra og fulltrúar úr félagsmála- og forvarnateymi kynntu ýmislegt sem snýr að starfi skólans, reglum og þjónustu.
Fulltrúar úr stjórn Nemendafélags BHS komu og sögðu stuttlega frá félagslífinu og hvöttu nemendur til að taka virkan þátt í því.
Að lokum var nemendum, foreldrum og forráðamönnum boðið að ganga til kennslustofu og hitta sína umsjónarkennara.
Mikið fjölmenni var á þessari kynningu og endurspeglar það ásóknina í skólann.