NÝTT - Afreksíþróttir í Borgarholtsskóla
Frá og með haustönn 2007 verður boðið upp á afreksíþróttaáfanga í knattspyrnu, körfuknattleik og golfi í Borgarholtsskóla. Nemendur í afreksíþróttaáfanga geta stundað nám á hvaða bóknámsbraut skólans sem er.
Afreksíþróttaáfangi er fyrir nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða bóknámi.
Kennslufyrirkomulag :
Nemendur fá þrjár æfingar á viku á skólatíma. Auk þess er eitt helgarnámskeið á hverri önn þar sem lögð er áhersla á ýmsar stoðgreinar sem nýtast afreksíþróttafólki.
Kennslustaðir :
Knattspyrna Egilshöll
Körfuknattleikur Íþróttahús Fjölnis, Dalhúsum
Golf Korpúlfstaðavöllur – Básar
Auk þess fá nemendur aðgang að World Class í Spönginni.
Kröfur til nemenda :
- hafi stundað íþrótt sína i nokkur ár og vera virkur iðkandi í íþróttafélagi.
- hafi staðist grunnskólapróf
- sé vímuefnalaus íþróttamaður
- Geti tileinkað sér hugarfar og lífsstíl afreksíþróttamanns
- Standist eðlilega námsframvindu og ljúki u.þ.b. 15- 19 einingum á önn.
- hafi a.m.k. 95% skólasókn.
Efnisgjald fyrir afreksíþróttaáfanga er kr. 60.000 á önn, til viðbótar við önnur skólagjöld.
Umsóknareyðublað fyrir þá sem vilja sækja um afreksíþróttaáfanga í Borgarholtsskóla er hér. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublaðið á skrifstofu skólans.
Nemendur þurfa að prenta út eyðublaðið, fylla það út og skila á skrifstofu Borgarholtsskóla í síðasta lagi 11. júní n.k. Ekki er hægt að sækja um afreksíþróttanámið rafrænt.
Allar nánari upplýsingar veitir
Bjarni Jóhannsson
Verkefnisstjóri afreksíþrótta BHS
Sími 896 8566