Smásagnakeppni á ensku
FEKÍ, Félag enskukennara á Íslandi, efnir til árlegrar smásagnakeppni á ensku fyrir framhaldsskóla og eru nemendur í Borgarholtsskóla hvattir til þess að taka þátt. Þemað í ár er DOORS og sagan á að vera 2-3 blaðsíður að lengd.
Skilafrestur er til 12. nóvember og eru þátttakendur beðnir um að senda söguna sína vélritaða til enskukennara skólans. Senda má sögurnar til Sólrúnar enskukennara á netfangið solrun@bhs.is. FEKÍ veitir verðlaun fyrir bestu sögurnar, auk þess sem enskudeild Borgarholtsskóla veitir verðlaun fyrir þær sögur sem þótt hafa skarað fram úr í skólanum.