Kennaranemar haust 2013
Í vetur verða hjá okkur 4 kennaranemar til að kynnast skólastarfinu á sem fjölbreyttastan hátt. Í hópnum eru að þessu sinni Auður Helgadóttir (fjölskyldu- og uppeldisfræði), Ásgeir Rafn Birgisson (náttúrufræði), Björg Sveinsdóttir (félagsgreinar) og Guðmundur Ingi Gunnarsson (uppeldisfræði).
Á vikulegum fundum kynnast þau starfinu innan veggja skólans. Einnig munu þau nýta sér þetta einstaka tækifæri til að fara í áhorf bæði í sínum greinum og öðrum og sinna æfingakennslu. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin og vonumst til að dvölin verði þeim bæði gagnleg og skemmtileg.