Útskriftarsýning listnámsnema
Útskriftarsýning nemenda á listnámsbraut Borgarholtsskóla verður haldin á Korpúlfsstöðum dagana 27. og 28. apríl. Opið frá kl. 14 – 18.
Sýningin verður opnuð formlega föstudaginn 26. apríl kl. 18.
Þeir 21 listnámsbrautarnemendur sem eiga verk á sýningunni hafa sérhæft sig í margmiðlun, nánar tiltekið prent- og skjámiðlun. Verk þeirra eru fjölbreytt, m.a. er að finna ljósmyndaverk, skjáverk, vefsíður og þrívíddarverk.