Nordplus verkefni
Þann 18. september fara sjö manns frá Borgarholtsskóla til Kalundborgar í Danmörku til þess að taka þátt í spennandi verkefni sem styrkt er af Nordplus.
Verkefnið snýst um alheimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (UN Global Goals).
Til að vinna með markmiðin er notuð sérstök aðferðafræði/kennslufræði
sem gengur undir nafninu Learning Power. Þær þjóðir sem taka þátt í
verkefninu auk Íslendinga eru, Finnar, Eistar, Lettar og Danir.
Nemendum í nýsköpun (NÝS2A02) var boðið að taka þátt. Fimm þeirra halda til Kalundborgar en fleirum gefst kostur á að taka þátt í næstu heimsóknum. Verkefninu lýkur með því að hópurinn hittist hér í skólanum í apríllok á næsta ári.
Nemendurnir sem fara eru Arney Ósk Guðlaugsdóttir, Kári Alexander Þórðarson, Kristján Már Kjartansson, Sigríður Dröfn Auðunsdóttir og Tinna María Árnadóttir. Með í ferðinni verða Anton Már Gylfason áfangastjóri og Kristján Ari Arason kennari og sviðsstjóri bóknáms.