Landsliðsstyrkir afhentir
Landsliðsstyrkir afreksíþróttasviðsins voru afhentir í 7. sinn mánudaginn 8. janúar sl. Að þessu sinni höfðu 19 nemendur tekið þátt í verkefnum landsliða á vegum sérsambanda á síðustu önn og tóku á móti styrkjum. Það er glæsilegur árangur og hér gefur að líta yfirlit yfir nemendurna og hvað þau voru að fást við.
Verkefnin sem styrkt voru eru eftirtalin:
Ólympíumót æskunnar þar sem handboltaleikmennirnir Tumi, Arnar, Hafsteinn, Daníel, Björgvin, Þorleifur, Arnór og Goði kepptu fyrir Íslands hönd með U18 ára landsliði Íslands og enduðu í 8. sæti. Þess má geta að þeir kepptu einnig á Sparkassen Cup í Þýskalandi og sigruðu. Ísland hefur tekið þátt í því móti í 20 ár og er það í fyrsta skipti sem íslenskt karlalandslið nær þessum glæsilega árangri.
Magnús Gauti borðtennisspilari keppti á sterku móti í Finnlandi í byrjun árs og sigraði þar tvær viðureignir sem telst góður árangur.
Norðurlandamótið í sundi skartaði þremur nemendum frá okkur. Bryndís Bolladóttir nældi sér í brons og persónulegar bætingar. Brynjólfur keppti og komst í úrslit í 200m baksundi og varð í 9. sæti í 100m baksundi. Ragna Sigríður keppti í 200m skriðsundi þar sem hún hafnaði í 9. sæti.
Andrea Jacobsen lék með A-landsliði Íslands í undankeppni EM í handbolta í tapleikjum gegn sterkum liðum Dana og Tékka.
Jón Albert lék með U18 ára íshokkílandsliði karla á HM 2. deild. Liðið endaði í 5. sæti.
Ómar, Jóhann og Sigurjón kepptu með U17 ára landsliði Íslands í fótbolta í riðlakeppni EM sem fram fór í Finlandi. Drengirnir stóðu sig vel og komust áfram í milliðriðil.
Frjálsíþróttafólkið lét ekki sitt eftir liggja. Kolbeinn Tómas keppti á Norðurlandamóti unglinga í fjölþrautum. Þar hafnaði hann í 5. sæti í U18 ára flokki. Bergrún Ósk keppti á HM unglinga í Nottwill í Swiss og hafnaði í 1., 4. og 6. sæti í keppni í þrautum.
Öllum styrkþegum er óskað til hamingju með árangurinn.