Kynningafundur
Fimmtudaginn 12. janúar mættu nýnemar í dreifnámi á félagsvirkni- og uppeldissviði á kynningarfund í fyrirlestrarsal skólans.
Ársæll Guðmundsson skólameistari bauð nemendur velkomna og stoðþjónusta skólans var kynnt.
Gengið var upp á bókasafn þar sem sagt var frá þeirri þjónustu sem þar er boðið upp á.
Að lokum fóru nemendur í tölvustofur og fengu aðstoð við fyrstu skrefin í námsumsjónarkerfinu Moodle.
Fyrsta dreifnámslota annarinnar stendur yfir dagana 12.-13. janúar.