Heilsudagur
Heilsudagur var haldinn í skólanum í dag.
Dagurinn byrjaði á
því að tekið var á móti nemendum með ávöxtum og lýsistöflum frá Lýsi
hf. Í fyrstu frímínútum dagsins buðu skólameistarar upp á hafragraut í matsal skólans.
Hefðbundið skólastarf var framan af morgni en kl. 10:35 og fram yfir hádegi var kennslan brotin upp. Nemendum stóð til boða að fara á fjölbreyttar stöðvar sem allar miðuðu að því að rækta líkama og sál.
Hægt var að velja um frisbee golf, sund, knattspyrnu, skák, skauta, jóga, spinning, keilu, tækjasal í
World Class, matreiðslunámskeið, horfa á fræðslumynd um sjálfsskaða eða hlusta á Þorstein Kristján Jóhannsson flytja
fyrirlestur um tölvufíkn.
Nemendur voru áhugasamir og fögnuðu þessari tilbreytingu frá hefðubundnu skólastarfi.
Fleiri myndir frá heilsudeginum má sjá á facebook síðu skólans .