Alþjóðlegi hamingjudagurinn
Alþjóðlegi hamingjudagurinn er 20. mars og var honum fagnað í Borgó í dag.Í síðustu viku voru nemendur fengnir til að svara spurningunni
„Hvað veitir þér hamingju?" Svörin voru skrifuð niður á litríkan pappír og hengd upp í matsalnum.
Í hádeginu kom uppistandarinn Bylgja Babýlons og spjallaði við nemendur og starfsfólk.