2020 komið út
Tímaritið 2020 er komið út en að útgáfu þess standa iðn- og
starfsnámsskólar á Íslandi.
Tilgangur blaðsins er að kynna og vekja
athygli á fjölbreytni iðn- og starfsnáms en hægt er að stunda slíkt nám í
nærri 60 greinum í 14 skólum víðs vegar um landið. Allir nemendur á iðn- og starfsnámsbrautum eiga þess kost að ljúka stúdentsprófi samhliða.
2020 er að koma út í fjórða sinn, það er prentað 12500 eintökum og verður því
dreift til allra nemenda í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla.