Umsókn fyrir sveinspróf
Byrjar: 07/03/2023
Endar: 01/04/2023
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin á vegum Iðunar fræðsluseturs sem hér segir ef næg þátttaka næst:
Í blikksmíði maí/júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl
Í vélvirkjun 15.-17. september. Umsóknarfrestur er til 1. júlí
Í stálsmíði 30. ágúst-1. september. Umsóknarfrestur til 15. júní
Í bifreiðasmíði og bílamálun í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl
Í bifvélavirkjun í september. Umsóknarfrestur er til 1. júlí
Nánari dagsetningar verða birtar á vef Iðunnar fræðsluseturs um leið og þær liggja fyrir
Með umsókn skal leggja fram afrit námssamnings, lífeyrissjóðsyfirlit eða staðfestingu frá skóla úr rafrænni ferilbók og burtfararskírteini með einkunum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2023.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Iðan.is og á skrifstofu Iðunar.