Líf í borgarholtsskóla

Innritun í dreifnám á vorönn 2024

Byrjar: 01/11/2023

Endar: 15/12/2023

Innritun í dagskóla er lokið en enn er opið fyrir umsóknir í dreifnám. Opið er fyrir umsóknir til 15. desember.

Spurningar og svör um námið og Borgó.

Nám með vinnu (dreifnám)

Boðið er upp á dreifnám á félagsvirkni- og uppeldissviði og málm- og véltæknibrautum. Það nám er hugsað fyrir þá sem eiga þess ekki kost að stunda hefðbundið nám í dagskóla og er því hægt samhliða námi í dreifnámi að stunda vinnu.

Félagsvirkni- og uppeldissvið

Búið er að opna fyrir umsóknir um nám á félagsvirkni- og uppeldissviði fyrir vorönn 2024.
Sótt er um námið á rafrænu umsóknareyðublaði .
Nánari upplýsingar gefur Marín Björk Jónasdóttir, sviðsstjóri, marin.jonasdottir@borgo.is

Málm- og véltæknisvið

Innritun fer fram í gegnum umsóknarvef Innu .
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Gylfason, deildarstjóri, haraldur.gylfason@borgo.is