Félagsmála- og tómstundanám
Félagsmála- og tómstundanám er skipulagt sem fimm anna nám og endar með útskrift. Hægt er að halda áfram og hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs. Í upphafi samanstendur námið af áföngum sem mynda kjarna á félagsvirkni- og uppeldissviði. Er á líður eykst hlutfall sérgreina námsins og á síðustu tveimur önnum þess koma til starfsþjálfunaráfangar sem m.a. fara fram í formi vinnustaðanáms. Til að koma til móts við fólk með langa starfsreynslu hefur verið boðið upp á svokallað brúarnám á félagsmála- og tómstundabraut þar sem raunfærni og starfsreynsla er metin til styttingar á námi í samræmi við reglur sem mennta- og menningarmálaráðuneytið setur.
Nám á félagsmála- og tómstundabraut saman stendur af alls 27 námsáföngum sem samtals eru 124 ein. Í kjarna félagsmála- og tómstundabrautar eru alls 17 áfangar sem eru samtals 69 ein. Nemendur þurfa að velja á milli áherslu á starf með öldruðum eða ungmennum.
Hægt er að velja tvær leiðir til lokaprófs, annað hvort sem starfsnám og/eða til stúdentsprófs. Þeir áfangar sem bætast við upp í stúdentsprófið eru feitletraðir.
Kjarnagreinar
Nemendur sem ætla að útskrifast með viðbótanám til stúdentsprófs taka alla kjarnaáfanga, þeir sem taka brautina til starfsmenntunar sleppa feitletruðum áföngum.
Fag | Áfangaheiti |
---|---|
Danska | DAN2A05 |
Einstaklingur, fjölskylda og samfélag | FJF1A05 |
Enska | ENS1A05 *, ENS2A05 , ENS2B05 |
Fatlanir | FTL1A05 |
Félagsfræði | FÉL1A05 |
Félagsleg virkni | FÉV2A05 |
Fjölskyldan og félagsleg þjónusta | FJF2A05 |
Frítímafræði | FRÍ2A05 |
Frítímafræði ungmenna | FRÍ2B05 ** |
Frítímafræði fullorðinna | FRÍ3A05 ** |
Gagnrýnin hugsun og siðfræði | GHS2A05 |
Heilsa og lífsstíll | HLÍ1A05 |
Íslenska | ÍSL1A05 *, ÍSL2A05 , ÍSL2B05 , ÍSL3A05 , ÍSL3B05 |
Íþróttir | LÍL1A01 , LÍL1B01 , LÍL1C02BÓK , LÍL1D01 |
Samvinna og samskipti | SAS1A05 |
Þroskasálfræði | SÁL3A05 |
Afbrigðasálfræði | SÁL3B05 |
Skapandi starf | SPS1A05 |
Skyndihjálp | SKY2A01 |
Stærðfræði | DÆD1A05 *, STÆ2A05 , STÆ2C05 |
Uppeldisfræði | UPP2A05 |
Uppeldisfræði** | UPP3A05 ** |
Upplýsingatækni | UTN2A05 |
Vinnan og vinnuumhverfið | VUM1A05 |
Vinnustaðanám 1 | VIN2A10 |
Vinnustaðanám 2 | VIN3A10 |
Öldrun | ÖLD1A05 ** |
*Nemendur með A eða B í íslensku, ensku og/eða stærðfræði velja 1. eða 3. þreps áfanga til þess að taka í stað í stað 1A05. 1. þreps áfangar í kjarnagreinum (ísl, ens, stæ) teljast ekki til eininga.
**Nemendur velja annað hvort öldrunarlínu eða uppeldislínu.
Bundið áfangaval fyrir þá sem taka viðbótarnám til stúdentsprófs
Nemendur velja 5 ein í ensku og/eða stærðfræði.
Nemendur velja annað hvort félagsvísindi, náttúruvísindi eða sögu sem viðbót (5 ein.).
Heiti | Áfangi |
---|---|
Enska | ENS3A05 , ENS3B05 |
Stærðfræði | STÆ3A05 , STÆ3B05 , STÆ3C05 |
Félagsvísindi | FÉL2A05 |
Náttúruvísindi | NÁT1A05 , NÁT2A05 , NÁT2B05 |
Saga | SAG2A05 |
Frjálst val
Nemendur nýta frjálst val til þess að fylla upp í þær 200 ein sem þarf til stúdentsprófs. Athugið að einingar á 1. þrepi mega að hámarki vera 66, einingar á 2. þrepi mega að hámarki vera 100 og einingar á 3. þrepi þurfa að vera að lágmarki 34.
15.2.2021