Líf í borgarholtsskóla

Aðstaðan

Kennsla á afreksíþróttasviði fer öll fram innan skóladagsins við frábærar aðstæður í Egilshöll (verklegt) og Borgarholtsskóla (bóklegt).

WorldClass Egilshöll

Nemendur á afreksíþróttasviði fá aðgang að World Class í Egilshöll á skólatíma. Nánar tiltekið frá klukkan 8:00-17:00 virka daga, nema til klukkan 15:00 á föstudögum.

Sundlaug Grafarvogs

Nemendur á afreksíþróttasviði fá nafnskírteini sem þeir geta framvísað í afgreiðslu sundlaugar og fengið aðgang sem hér segir.

Sjúkraþjálfun Styrkur ehf.

Borgarholtsskóli er  með samstarfssamning við Sjúkraþjálfun Styrkur ehf. Nemendur á afreksíþróttasviði hafa góðan aðgang að sjúkraþjálfara þar.
Samkomulagið við Sjúkraþjálfun Styrkur ehf .

Hugþjálfun

Hugþjálfunarsalur er samstarfsverkefni afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla og Ungmennafélagsins Fjölnis. Hugþjálfunarsalurinn er færanlegur og er því í formi tilbúinnar tösku sem inniheldur tæki og tól til að setja upp fræðandi og skemmtilega stöðvaþjálfun fyrir íþróttahópa. Í hugþjálfunarsalnum eru krefjandi æfingar sem reyna á hugræna færni íþróttafólks svo sem minni, einbeitingu, viðbragðsflýti og sjónræna eftirtekt. Þegar hugþjálfunarsalurinn er pantaður kemur íþróttafræðingur eða annar fær sérfræðingur með mikla þekkingu á æfingunum og sér um uppsetning salarins, framkvæmd æfinga og fræðslu um hverja æfingu.

Meginmarkmið salarins er að vekja athygli á að árangur í íþróttum byggir meðal annars á hugrænum þáttum sem hægt er að þjálfa. Hliðarafurðir tímans eru m.a. teymisvinna og keppnir sem hægt er að setja upp í stöðvum á fjölbreyttan hátt eftir aldri og getu einstaklinga.

Hugþjálfunarsalurinn er hugsaður sem leið til uppbrots á hefðbundnum æfingum þar sem íþróttafólk spreytir sig í æfingum sem alla jafna eiga ekki pláss inni í skipulögðum æfingatímum. Samhliða því að reyna sig við æfingarnar er íþróttafólkið frætt um mikilvægi þess hugræna eiginleika sem verið er að æfa hverju sinni og hvernig hann nýtist í tiltekinni íþróttagrein. Hér er því um að ræða góða skemmtun en um leið mikilvæga fræðslu um hugræna þætti íþrótta og hvernig æskilegt er að þjálfa þá upp.

Áhugasömum er bent á að senda tölvupóst á Arnór Ásgeirsson, arnor.asgeirsson@borgo.is eða á Hreiðar Haraldsson, hreidar.haraldsson@borgo.is

Hugarþjálfun er mikilvægur þáttur í undirbúningi íþróttamanns fyrir keppni. Uppbygging og þróun færanlegs hugþjálfunarsals fyrir skóla og íþróttafélag.

Verkefnislýsing

Verkefnið er samstarfsverkefni Ungmennafélagsins Fjölnis og afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla og byggir á samstarfssamning sem undirritaður var í janúar 2018. Verkefnið snýr að því að búa til aðstöðu til hug- og sjónþjálfunar á hagkvæman hátt með einfaldri tækni og búnaði. Aðstöðu sem hægt væri að setja upp í kennslustofu eða öðrum sölum og auðvelt væri að færa á milli staða. Umsóknin er liður í þeirri viðleitni Afreksíþróttasviðsins við Borgarholtsskóla og Umf. Fjölnis við að vera fremst í flokki skóla sem sinna þjálfun ungs íþróttafólks hér á landi og standast alþjóðlegan samanburð. Fjölnir og Borgó hafa skrifað undir samstarfssamning sem snýr að þjálfun ungmenna í Grafarvogi og nemendum skólans sem koma víðar að. Fjölnir og Borgarholtsskóli vilja bjóða nemendum sínum upp á alhliða þjálfun; líkamlega, tæknilega, félagslega og andlega.

Verkefnið felst í:

  • Vinnu við undirbúning og uppsetningu tækja og þeirra verkefna sem munu vera í salnum.
  • Kaupum á þeim búnaði sem talinn er nauðsynlegur til að útbúa salinn til notkunnar.

Uppfært: 23/01/2023