Líf í borgarholtsskóla

Afrekið

Borgarholtsskóli býður upp á afreksíþróttasvið fyrir alla nemendur sem stunda skipulagðar keppnisíþróttir undir handleiðslu þjálfara. Námið er að mestu verklegt þar sem boðið er upp á sérstakar tækniæfingar í völdum íþróttagreinum þar sem fjöldi og aðstæður leyfa (fótbolti, handbolti, golf og íshokkí svo dæmi séu tekin). Nemendur úr öðrum íþróttagreinum fá líkamlegar styrk- og þolæfingar ásamt sérstaklega smíðuðum verkefnum og utanumhald. Á sviðinu fer einnig fram skipulögð bókleg kennsla þar sem farið er í grunnstoðir árangurs í íþróttum; líkamlega og sálfræna þjálfun, svefn og næringu ásamt félagslegum þáttum.

Kennsla fer öll fram innan skóladagsins við frábærar aðstæður í Egilshöll (verklegt) og Borgarholtsskóla (bóklegt). Nemendum bjóðast tækifæri til að vinna margvísleg hagnýt verkefni sem nýtast þeim sem nemendum jafnt sem íþróttinni sem þeir stunda. Markmið afreksíþróttasviðs er að bjóða upp á nám sem styður við þarfir íþróttafólks á framhaldsskólastigi. Í því felst æfingar á skólatíma, sveigjanleika til ástundunar keppni og æfinga með félagsliði og landsliðum, faglegan stuðning og þjónustu við nemendur.

Skipulagið útskýrt á fimm mínútum.

Afrekssvið – algengar spurningar

Samfélagsmiðlar

Afreksíþróttasvið notar samfélagsmiðla til að miðla efni.

Instagram síða afreksíþróttasviðs

YouTube rás afreksíþróttasviðs

Hlaðvarp afreksíþróttasviðs

Efnisgjald

Efnisgjald fyrir afreksíþróttasvið er innheimt sérstaklega til viðbótar við önnur skólagjöld og er það kr. 40.000 fyrir önn. Innifalið í efnisgjaldinu er:

  • Fatnaður: Á hverju ári fá allir nemendur merktan fatnað og nýnemar fá íþróttatösku.
  • Námsgögn: Nemendur fá bókina Þjálffræði eftir Gjerset, A., Raastad, T., Haugen, K., Holmstad, P. og Giske, R., útgefin 2020 og er hún notuð sem grunnlesefni í fagbóklegri kennslu.
  • Ferðir: Á hverju hausti fara nemendur á afreksíþróttasviði í ferðir til að til að kynnast betur og skemmta sér saman. Nám á afreksíþróttasviðinu tekur þrjú ár og eru ferðalögin skipulögð þannig að árgangarnir séu saman. Frétt frá hausti 2021.
  • Meðferð við meiðslum: Við alvarlegum meiðslum er eftirfarandi viðbragðsferli:
    – Boðið upp á viðtal við íþróttasálfræðing um markmiðssetningu og viðbrögð.
    – Boðið upp á ráðgjöf varðandi næringu.
    – Boðið upp á tengingu við færa sjúkraþjálfara.

Umsókn

Nemendur sækja um skólavist á bóknámsbraut rafrænt í gegnum Menntagátt (vefur Menntamálastofnunar). Einnig þarf að sækja sérstaklega um á umsóknareyðublaði fyrir afreksíþróttasvið fyrir auglýstan frest hverju sinni.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Þórdís María Aikman
Verkefnisstjóri afreksíþróttasviðs
Tölvupóstur: thordis.aikman@borgo.is 

Uppfært: 05/01/2024

Sjá fréttir um Afrekið