Innritun á haustönn 2022
Borgarholtsskóli býður upp á fjölbreytt nám, bóknám, iðn- og starfsnám og listnám.
Spurningar og svör um Borgó og námið þar.
Dagskóli
Innritun eldri nemenda á haustönn 2022 fer fram dagana 15. mars til 22. apríl 2022.
Innritun nemenda í 10. bekk fer fram 25. apríl til 10. júní 2022.
Innritun fer fram á vef Menntamálastofnunar.
Nám í boði
- Afreksíþróttasvið *
- Bíltæknibrautir, bifreiðasmíði, bifvélavirkjun, bílamálun
- Bóknám, félags- og hugvísindabraut, náttúrufræðibraut, viðskipta- og frumkvöðlabraut
- Félagsvirkni- og uppeldissvið, félagsliðar, leikskólaliðar
- Framhaldsskólabraut
- Listnám - grafísk hönnun, kvikmyndagerð, leiklist
- Málm- og véltæknibrautir, blikksmíði, rennismíði, stálsmíði, vélvirkjun
*Nemendur, sem óska eftir að stunda nám á afreksíþróttasviði, sækja um skólavist rafrænt eins og aðrir. Því til viðbótar þurfa þeir að sækja um á afreksíþróttasviði á sérstöku eyðublaði sem þarf að berast í síðasta lagi 10. júní 2022.
Inntökuskilyrði
Innritunargjöld
Nám með vinnu (dreifnám)
Boðið er upp á dreifnám á félagsvirkni- og uppeldissviði og málm- og véltæknibrautum. Það nám er hugsað fyrir þá sem eiga þess ekki kost að stunda hefðbundið nám í dagskóla og er því hægt samhliða námi í dreifnámi að stunda vinnu.
Félagsvirkni- og uppeldissvið
Búið er að opna fyrir umsóknir um nám á félagsvirkni- og uppeldissviði fyrir haustönn 2022.
Sótt er um námið á rafrænu umsóknareyðublaði .
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2022.
Nánari upplýsingar gefur Marín Björk Jónasdóttir, sviðsstjóri, marin.jonasdottir@borgo.is
Málm- og véltæknisvið
Innritun fer fram í gegnum umsóknarvef Innu .
Stundatafla í dreifnámi málms á haustönn 2022
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2022.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Ómarsson deildarstjóri, adalsteinn.omarsson@borgo.is