Innritun á haustönn 2020
Innritun á haustönn 2020 verður með eftirfarandi hætti.
Dagskóli
Forinnritun 10. bekkinga verður 9. mars - 13. apríl.
Lokainnritun 10. bekkinga verður 6. maí - 10. júní.
Innritun annarra nema en 10. bekkinga verður dagana 6. apríl - 31. maí.
Nánari upplýsingar og innritun fer fram á vef Menntamálastofnunar.
Námið
- Listnám
- Iðn- og starfsnám
- Bóknám
- Félags- og hugvísindabraut - Náttúrufræðibraut - Viðskipta- og frumkvöðlabraut
- Framhaldsskólabraut
- Sérnámsbraut (umsóknartímabili lokið)
- Afrekið *
*Nemendur, sem óska eftir að stunda nám á afreksíþróttasviði, sækja um skólavist á bóknámsbraut rafrænt eins og aðrir. Því til viðbótar þurfa þeir að sækja um á sérstöku eyðublaði og senda það ásamt meðmælabréfi rafrænt til bhs@bhs.is eða sveinn@bhs.is í síðasta lagi 10. júní 2020.
Inntökuskilyrði
Innritunargjöld
Nám með vinnu (dreifnám)
Félagsvirkni- og uppeldissvið
- Félagsliðar
- Viðbótarnám félagsliða
- Félagsmála- og tómstundanám
- Leikskólaliðar
- Viðbótarnám leikskólaliða
- Stuðningsfulltrúar í skólum
Búið er að opna fyrir umsóknir um nám á félagsvirkni- og uppeldissviði fyrir haustönn 2020.
Sótt er um námið á rafrænu umsóknareyðublaði .
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2020.
Nánari upplýsingar gefur Marín Björk Jónasdóttir, sviðsstjóri, marin@bhs.is
Málm- og véltæknisvið
Opið verður fyrir umsóknir 15. apríl - 15. júní.
Stundatafla fyrir dreifnám málms haustönn 2020
Rafræn innritun er á umsóknarvef Innu
Nánari upplýsingar gefur Aðalsteinn Ómarsson, deildarstjóri, adalsteinn@bhs.is