| Fréttir
frá haustinu 2007: |
24.10.07 Kennsla á haustönn er rúmlega hálfnuð
núna. Miðannarmati lokið og flestir farnir að
sjá hvar þeir standa í hverju fagi. Við
erum að byrja "aðflug" og undirbúa
lendingu í desember.
12.09.07 Í lok júlí í sumar fóru
sex nemendur á verslunarbraut til Berlínar til
að keppa á Evrópumóti æfingafyrirtækja.
Okkar lið stóð sig mjög vel en fékk
ekki verðlaun önnur en ánægjuna við
að fara þessa ferð og vera skólanum og
Íslandi til sóma. Ásg.V
NOKKRAR MYNDIR
ÚR FERÐINNI |
| Fréttir
frá vorinu 2007: |
Gjöf til
Verslunarbrautar BHS
8.5.2007
Kaupmannasamtök Íslands gáfu Verslunarbraut
Borgarholtsskóla 500.000 kr. styrk í byrjun maí
til kynningar á brautinni og fleiri verkefna.
Við þökkum þeim kærlega fyrir þetta
rausnarlega framlag og munum
kappkosta að nýta það á sem bestan
hátt
8. júní 2007 Nú erum við að
bæta við skrifstofubraut sem felur í sér
nýja áfanga á 4. önn. Verslunar- og
skrifstofubrautir verða sameiginlegar fyrstu þrjár
annir námsins. Á 4. önn mega nemendur velja
að læra meiri markaðsfræði og vörufræði
verslana (Verslunarbraut) eða taka 3ja áfangann í
bókfærslu og vörufræði fyrir skrifstofur. Sjá brautarlýsingu
hér.
Við förum nú eftir nýrri námsskrá
sem starfsgreinaráð verslunar- og þjónustugreina
samdi fyrir menntmálaráðuneytið. Markmið
námsins eru þau og áður. En það
er þróað áfram til að mæta
kröfum nútímans með nýju námsefni
þar sem það á við og endurskoðun
eldri greina sem kenndar verða áfram undir nýjum
áfangaheitum.
Við áttum ágæta vorönn að þessu
sinni. Sérstaklega ánægjulegt var gott gengi
Base æfingafyrirtækis sem vann keppni 23 fyrirtækja.
Útskrifaðir voru 5 nemendur og virðast fleiri
ætla að útskrifast um jólin á
þessu ári.
Sumir þeirra sem halda áfram til stúdentsprófs
ljúka því og verslunarbraut á sama
tíma og útskrifast sem stúdentar.
Fjögurra ára verslunarbraut (Viðskipta- og
hagfræðibraut) er í undirbúningi og
verður vonandi komin formlega í gang haustið
2008. Þeir sem innritast nú geta valið hvort
þeir útskrifast eftir 2 ár eða 4 ár.
Tveggja ára náminu lýkur með verslunarprófi
en
fjögurra ára námi lýkur með stúdentsprófi
af VH braut
eða 4 ára verslunarbraut.
Við erum að búa til nýtt upplýsingarit
um nánið á brautinni og verið er að
taka upp nýja námsskrá fyrir tveggja ára
námið. Kynningarritið sem opna má hér
efst á síðunni er miðað við skipulagið
undanfarin ár. En námið verður með
sömu aðalþáttum og áður þótt
þeim verði raðað saman með nýjum
hætti og áfangar munu fá ný heiti
og nýtt námsefni. Námsefnið verður
endurnýjað en stefnt að því að
kenna sömu hæfni og áður. Markmið
í náminu er að gera nemendur hæfa til
að vinna vel í verslunum og skrifstofum og öllum
stöðum þar sem krafist er þekkingar á
tölvum, bókfærslu, samskiptum við viðskiptavini,
innsýn í lögfræði, vörufræði
7. mars 2007 Vorönn er hálfnuð og það
fer að styttast í páskaleyfi.
Margir kennarar reyna að ljúka mestum hluta námefnis
fyrir páska til að geta notað tímann eftir
páska til upprifjunar og undirbúnings fyrir próf
í maí.
|
| Fréttir
frá haustinu 2006: |
15. nóvember 2006.
Nú er önnin langt komin og lítið
hefur verið skrifað hér á
forsíðuna. En efni set ég inn
á áfanga sem ég kenni, til
dæmis REK103 og REK102. En TÖF213 og
UTN103 hafa verið að mestu óbreyttir
frá því í fyrra.
Önnin hefur verið dálítið
sérstök, með löngu haustfríi
í október og 10 ára afmælisfagnaði
skólans í september. En kennslan
hefur gengið skv. áætlun. Nú
eru hafin seinni skyndipróf í rekstrarhagfræðinni
og stutt í lokaprófin. Í
TÖF213 er símat og lýkur því
með stóru verkefni í síðustu
viku nóvember. Í UTN er Word, Excel
og Powerpoint lokið og næsta mál
að gera vefsíður í Frontpage.
Á.
14.ágúst. Kennsla á haustönn
hefst í næstu viku (22. ágúst)
19.júní. Þá innritun
að ljúka og hlé verður á
skólastarfi í júlímánuði
Skrifstofan er opin út júní
og opnar aftur í byrjun ágúst |
| |
|
| Fréttir
frá vorinu 2006: |
22. maí. Nú er útskrift
lokið þetta vor og næsta mál
er inntaka nýrra nemenda. Umsóknarfrestur
er til 12. júní.n.k. Sækja
á um skólavist í dagskóla
á netinu á www.menntagatt.is
og því eru engin umsóknareyðublöð
heldur skrá umsækjendur persónulegar
upplýsingar sínar á netinu
og upplýsingar um námferil koma
beint frá ráðuneytinu.
26.apríl og prófin nálgast
Margir eru að ljúka vefsíðum
sem hafa verið í smíðum
frá því í janúar.
Tenglar eru hér TÖF203
1 og TÖF203
2
Á morgun og föstudag eru Lprf í
BÓK203
Þann 10. mars er farið að síga
á seinni hluta annarinnar.
Glæsiballið tókst vel þann
2. mars
Nú þarf að fara að byrja
á skyndiprófum fyrir alvöru
og huga að lokaverkefnum, því
ekki má draga of lengi að byrja á
þeim.
Miða þarf við að ljúka
þeim fyrir páska svo unnt sé
að nota síðustu vikuna í
apríl til að fara rifja upp og gera
samantekt um námsefnið á önninni
Hér vil ég vekja athygli á
símaskrá allra nemenda í
Borgó sem er á slóðinni
www.borgari.is
og svo símaskrá
Þá er kominn janúar 2006
Við erum að setja af stað tölvubókhaldið,
vefsmíði og myndvinnslu, sölu-
og markaðsfræði og fleiri fög
Nýjar tölvur verða settar í
stofu 313 helgina 14-15 jan.
Skólastarfið er nú komið
í gang. Nemendur eru að læra
á kerfið í skólanum og
nú ættu þeir að geta skoða
vefsvæði eins og þetta hér
og byrjað að ná sér í
efni og fylgjast með því hvað
er að gerast.
Aðalfréttasíður eru auðvitað
www.bhs.is og www.borgari.is
Ásíðunni hér eru tenglar
inn í áfangana
En það er einnig kominn upp lokaður
kennsluvefur
kennsla.bhs.is Við munum nota hann á
næstunni.
Á |
| |
|
| Fréttir
frá haustinu 2005: |
Innritun er lokið fyrir haustið 2005
Veb er tilvalin fyrir þá sem vilja
fá meira en venjulegt stúdentspróf.
Við bjóðum fagnám fyrstu
tvö árin í framhaldsskóla.
Þú færð ákveðin
réttindi með því að
ljúka verslunarprófi.
Þínir möguleikar á vinnumarkaði
munu aukast við það.
Vinnuveitendur spyrja gjarnan:
Kanntu á tölvur?
Hvernig er íslenskukunnátta þín?
Kanntu eitthvað í bókfærslu
og tölvubókhaldi?
Kanntu sölumennsku?
Kanntu að reikna prósentur?
Ef þú kemur í nám
hjá okkur getur þú svarað
þessum spurningum játandi að
því loknu. |
| Fréttir
frá vorinu 2005: |
16.05.05 Setti inn gamalt efni í VRR102.
Þetta er frá vori 2003 og er úr
sömu bók og nú er kennd. Kannski
viljið þið líta á
það fyrir prófið þ.
17. maí svona til upprifjunar.
Einnig vorpróf frá 2000-2003 en
þau eru úr eldri bók
Samt er flest í gildi enn því
bara sumum lögum hefur verið breytt síðustu
tíu ár (Bók Láru er
frá 1995)
VRR102 tengillinn hér
og fyrir neðan virkar nú á þetta
efni.
11.05.05 var að setja nýtt efni inn
á ÞJÓ103
tengill fyrir svör við vorprófi
2004. Smellið á refresh, (uppfæra)
ef þetta nýja sést ekki strax.
Ásg.
13.apríl 2005
Nú er mikið að gera í kynningarmálum.
Leikritið verður frumsýnt á
morgun, fi. 14.apríl í Iðnó
niður í bæ. kl. 20:30
Sýningar verða í Iðnó
18., 19., 20. kl 20:30 og 24 apríl kl 17:00.
Netfang:agon@borgari.is og Vefsíða:
www.borgari.is/bannad
Æfingafyrirtæki eru að gera upp
reksturinn þessa dagana.
Rakel hefur gert vefsíðu fyrir Bagyz,
slóðin er www.bhs.is/rakel.magnusdottir
Skyndipróf verður í ÞJÓ103
má. 19.apríl úr köflum
5,6,7 og 8
Sky2 í REK102 verður þr. 20.
apríl og mi 21. (kaflar 6 og 7)
Sky2 í BÓK203 Navision verður
má 19.. apríl (hefti 2)
Sky2 í TÖF203 verður fi.7. apríl
(Gera heimasíðu á 80 mín.)
Búið
Æfingafyrirtækin tvö Eldur&ís
og BagyZ hafa selt
töluvert af vörum og stefna í
að skila hagnaði af rekstri.
Markaðssetning á Leikritinu Bannað
að sofa hjá Maríu Mey er unnin
af nokkrum nemendum í SAL203
19. jan 2005. Nú eru allir áfangar
komnir í gang.
Í fyrirtækjasmiðju er búið
að stofna tvö fyrirtæki. Það
fyrra heitir Eldur&ís
og og það seinna er enn nafnlaust).
Hugmyndavinna er í gangi og gera þarf
markaðskannainr áður en ákveðið
verður hvað verður framleitt og selt
Töfluafhending þriðjudag 4. janúar
2005 |
| Fréttir
frá haustinu 2004: |
Útskrift laugardag 18. desember 2004 (14:00
- 16:00)
Prófasýning fimmtudag 16. des kl
11:00-13:00
Sjúkrapróf miðvikudag 15. des
INV103: Lokapróf miðvikudag 8. des
kl. 13:00 - 14:30
SAL103: Lokapróf fimmtudag 9. des kl.
9:00 - 10:30
BÓK103: Lokapróf fimmtudag 2. des
kl. 13:00 - 14:30
SAL103: Skila4 í Kringlu 24.nóv
- 2. des hópur 2 og 29.nóv - 9.des.
hópur 1 Verkefnið
er á vefsíðu SAL103
REK102: Lokapróf mánudag 29.nóv.
kl. 15:10 - 16:40
SAL103: Skila3 í Smáralind má
1 nóv.
SAL103: Skila3 í Smáralind þri
26. Gekk vel
UTN103: Word próf miðvikudag 13. okt.
Gildir 20% af einkunn
BÓK103: Auka sky1 þri. 12. okt
SAL103: Sky 1 þriðjudag 12. okt.
Skila verkefni um búðir (lýsing,
litir ...) mánudag 11. í síðasta
lagi.
REK102: Sky1 miðvikudag 31.sept. Aukasky1
mi. 13.okt.
Sky2 mi. 3. nóv. Lpróf má.
29. nóv.
10. okt 2004 Vali eða áætlun
fyrir næstu önn er að ljúka.
Látið mig vita um áfanga sem
þið gátuð ekki skráð
inn á áætlunina fyrir 20051
Ég mun þá setja þá
inn í vikunni ef allt er í lagi.
Ásg.
Vinna nemenda við áætlun (og
val) fyrir næstu önn hófst 30.sept.
21. sept var fundur með foreldrum kl 18-20
í sal skólans
16. sept var busadagur og ball um kvöldið
16.08.04 Skólinn að byrja á haustönn 2004
Töflur eldri nemenda voru afhentar þriðjudaginn
17. ágúst kl. 13-16
Óskir um töflubreytingar þurfa að berast fyrir
hádegi þ. 18. ágúst. 2004 |
| |
|
| |
Verslunar- og viðskiptanám er fagnám
Verslunar- og viðskiptanám á framhaldsskólastigi
hér á landi fellur undir fagnám og hefur Starfsgreinaráð
í verslunar- og skrifstofugreinum umsjón með því
fyrir hönd stjórnvalda. Í því eiga sæti fulltrúar
atvinnulífsins og Menntamálaráðuneytisins. Námskrárgerð
er sífellt í gangi til að laga námið að breyttum
aðstæðum. Nokkrir áfangar hafa verið færðir yfir
á annað ár en voru áður kenndir á fyrsta ári. En
kjarninn er sá sami, þ.e. að námið sé hagnýtt og
markvisst. Þórkatla Þórisdóttir
er kennslustjóri á verslunarbraut og félagsliðabraut
en fagstjórn og umsjón með vefsíðu hefur
Ásgeir Valdimarsson
kennari. Aðrir kennarar eru Hulda
Birna Baldursdóttir, Óttar
Ólafsson og Sólrún
Inga Ólafsdóttir. |
| |
|
| Fréttir
frá vorinu 2004: |
3.
apríl: Æsispennandi úrslitakeppni Við urðum
í öðru sæti með 21 stig en Versló í 1. sæti með
23 stig. Setjum stefnuna á næstu keppnina næsta
vor - 2005.
2. apríl: Gettu betur á móti Versló!!!
Úrslitin í beinni útsendingu!!! |
| |
1. apríl:
Glæsiball Nokkrar
myndir af ballinu
30. mars: Sky 2 í Navision og Bók 102 |
| |
22.
mars:Faktor Group á Vebhs er að selja
svarta boli á (1000kr) og
Kick selur lyklakippuhálsfestar
(500kr.) í salnum út vikuna |
| |
16.
mars: Unnum MR í Gettu betur |
| |
|
| Fréttir
frá vori 2003: |
Fyrirtækjasmiðjan,
ÆFI 204, vorið 2003
Nemendur á 2. ári VeBHS stofnuðu tvö fyrirtæki í
vor. Annað heitir BORGÓ og er stofnað af 10 stelpum
og hitt heitir GRABBI og var stofnað af 10 strákum.
Kynjaskiptingin í bekknum var alveg jöfn og nemendur
alls 20. Gerðar voru markaðskannanir, viðskipta-
og fjárhagsáætlanir og annað sem þarf til að koma
smáfyrirtæki af stað. |
| |
Stelpurnar hönnuðu merki (Borgó eða B'or'go)
og létu setja það á boli, háskólapeysur og hettupeysur
og seldu heilmikið af þeim í skólanum og annars
staðar. Þær fengu verðlaun frá Sjóvá og Toyota umboðinu
í lokin fyrir bestu viðskiptaáætlunina. |
| |
Strákarnir keyptu
húfur og létu sauma BORGO
í þær og seldu síðan. Salan gekk reyndar ekki eins
vel hjá þeim. Strákarnir fengu ekki verðlaun innanlands
en komust í aðra umferð í æfingafyrirtækjakeppni
Hewlett-Packard. Í keppninni voru 5000 lið alls
staðar að úr heiminum.
Um 1000 komust áfram í aðra umferð. |
| |
Tölvurnar
voru mikið notaðar fyrirtækjasmiðju, ÆFI 204, vorið
2003. Þá tengdist þessi áfangi inn í alþjóðlegt
kerfi æfingafyrirtækja sem nefnist Junior Achievement
International. Vefslóð samtakanna erlendis er http://www.jaintl.org/
og hér á landi er vefslóðin http://www.jai.is/ |
| Fréttir
frá hausti 2002: |
Miðvikudagur
4. september 2002
Enn færa Kaupmannasamtök Íslands
Verslunarbraut BHS gjöf. Að þessu sinni eru
það tvær fartölvur til nota við kennslu á Verslunarbraut
BHS. Einnig gefa samtökin fé til
tímaritakaupa og fleiri mála sem varða kennslu við
brautina. |
| |
Við þökkum kærlega fyrir þessar gjafir
og munum nýta þær til að bæta aðstöðuna á Verslunarbraut |
| |
Endurnýjun tölva á
Verslunarbraut BHS: Í sumar
voru keyptar átta nýjar Dell GX50 tölvur til að
nota í stofu 216 sem er aðalstofa Verslunarbrautar.
Þær koma í staðinn fyrir sex eldri tölvur sem
verða hér eftir notaðar annars staðar í skólanum.
Með þessu móti verður öll vinnsla hraðvirkari
fyrir nemendur og kennara. Notkun á þessum tölvum
felst m.a. í leit að efni á netinu, útreikningum
í Excel í rekstrarhagfræði, kennsla á Access í
TÖL 222 og ekki síst eru þær notaðar í æfingafyrirtækinu,
Sagatrading ehf. Við bendum á heimasíðu Sagatrading. |
| |
|
| Fréttir
frá hausti 2000: |
Laugardagur 4. nóvember
2000
Kaupmannasamtök Íslands færa Verslunarbraut
BHS gjöf
Í tilefni af hálfrar aldar afmæli Kaupmannasamtaka
Íslands 8. nóvember færðu þau Verslunarbraut Borgarholtsskóla
að gjöf fullkominn tölvuskjávarpa til notkunar við
kennslu og styrkti gerð heimasíðu fyrir brautina.
Tölvuskjávarpinn er af gerð ASK C90 með 1024x768
upplausn og 1100 ANSI lumens birtu. Gjöfin er samtals
að upphæð hálf milljón króna. |
| |
Kaupmannasamtökin hafa frá stofnun
verslunarbrautarinnar stutt hana með ýmsu móti,
t.d. með því að hafa milligöngu um að kaupmenn taki
nemendur í verklega þjálfun og kynnt hana meðal
félagsmanna.
Gjöfin til Verslunarbrautar Borgarholtsskóla var
afhent á afmælisfundi sem haldinn var á Grand hótel
í Reykjavík laugardaginn 4. nóvember en þar opnaði
frú Valgerður Sverrisdóttir viðskipta- og iðnaðarráðherra
formlega heimasíðu brautarinnar. |